21.03.2013 21:28
Hav-ana eða Havana myndasýning var opnuð 23. mars 2013 í Lista og minningamiðstöð ABC barnahjálpar " Líf fyrir Líf " á Laugavegi 103 í Reykjavík. Sýningin er opin frá kl. 12:00 - 18:00 mánudaga til föstudaga og 12:00 - 16:00 á laugardögum til 18. apríl 2013. Kæru vinir verið hjartanlega velkomin til að sjá skemmtilegar myndir og kynnast starfsemi ABC barnahjálpar. Á staðnum má kaupa súkkulaði og myndir til styrktar starfinu. Myndirnar eru teknar af Steingerði bæði í Havana höfuðborg Kúbu og á Íslandi, ofansjávar -og neðan.
Útsýni úr glugga Hvítahússins í Krossavík
15.03.2013 23:18
Loksins er sýning framundan
Algerlega óvænt var mér boðið að sýna myndirnar mínar í stórum sal "ABC barnahjálpar" á Laugavegi 103 i Reykjavík. Boð sem ekki er hægt að hafna. Vona að sýningin leiði gott af sér og hjálpi litlum fallegum börnum sem á þurfa að halda.
27.11.2011 16:56
Örsýningunni er lokið
Örsýningunni í Kaffismiðju Íslands er nú lokið
Sælar Steingerður, við erum að fara að jólaskreyta hjá okkur, þannig að ég var að spá hvort þú vildir koma við og taka myndina :-) það er búið að vera frábært að hafa myndirnar þínar í glugganum okkar, mjög skemmtilegar myndir. Núna ætlum við reyndar að taka hlé. heyrumst síðar, kaffikveðja, Sonja
01.11.2011 10:24
Kaffismiðja Íslands
Ég á ennþá "Blöðrur" í glugga Kaffismiðju Íslands á Kárastíg 1. Sýningin "Orka" á Sólon búin og gekk mjög vel. Kærar þakkir til ykkar sem mættuð.
23. nóvember 2011