28.05.2020 23:26
Framhliðin 28.maí 2020
Til baka á "Mávur.is"
Andlitslyfting:
Fyrsti kaffitíminn á pallinum
Og Mola var boðið sæti við borðið.
20.05.2020 22:57
Pallgólfið
Hlé eftir vikuvinnu. Pallgólfið komið upp og rennan á framhliðinn klár.
Smiðurinn með verkfæri um öxl.
Pallurinn bætir sjávarsýn. Gluggasæti gerast ekki flottari :-)
Útsýnið
16.05.2020 23:04
Upp á pallgólfið
Mikið gerðist í dag (eins og svo oft áður). Rennan framan á húsinu var steypt í gær og fínpússuð í dag. Síðan var lokið við að setja grindina undir gólfpallinn og næstum allar gólfplöturnar komnar á. Útsýnið af efripalli er geggjað.
12.12.2019 23:34
Hurð frá Kína
Síðasta ferð fyrir jól var farin vestur mánudaginn 9. des. 2019. (Gott að setja ártal upp á seinni tíma spekulasjónir) Markmið ferðarinnar var að kíkja í kistu sem kom frá Kina. Í henni reyndist vera stærðarinnar rennihurð sem við byrjuðum að púsla saman.
Þvi fylgja nú ævintýri að setja upp svona hurð og það var ekki að klárast í þessari ferð.
Við fengum góðan gest. Það var hann Gerhard König skúlptúr listamaður sem langar til að sýna útilistaverk hjá okkur næsta í sumar.
24.11.2019 23:23
Vatnið er komið
Enn mjakast verkið. í þessari ferð kom vatnið. Við höfum verið að bíða eftir vatnslögn í húsið en það er svo mikið að gera hjá pípurum á svæðinu að ekki hefur unnist tími til að vinna það verk. Við gripum því til þess bráðabirgðaúrræðis að leggja leiðslu úr Ártúni og út í hús til að geta haldið áfram með múrverkið.
Þá gat múrverkið haldið áfram og nú er rennan á norðurgaflinum að verða klár og búið að múra niður að gluggum á þeirri hlið.
18.09.2019 22:33
Strompurinn
Við drifum okkur vestur í gær þann 17. sept. Það var fínasta veður en spáin slæm. Það gekk eftir í dag hefur verið lemjandi rigning og vindur. Við hundblaut bara við að hlaupa milli húsa. Moli meira að segja
hundblautur og hélt til í smyglstólnum. Við fundum þennan stól á víðavangi og þegar ég fór að laga eitthvað drasl sem hékk niður úr stólnum sá ég að undir setunni hefur greinilega eitthvað verið falið.
Árni að smíða stromp:![](http://cs-001.123.is/DeliverFile.aspx?id=40396536-12d3-4ced-bc3a-e713e4f3273d)
23.04.2019 21:49
Ellefti september 2019
Jæja komin tími til að skrifa smá pistil um húsbygginguna. Við höfum ekki ennþá fundið nafn á húsið. Ég kalla það helst "Nýja húsið" eða "Nýjasta húsið" En allavega í dag 11. sept. 2019 komum við Árni og Moli á Hellissand með kerru og á henni ný og flott kamina. Kaminan þurfti að standa á þremur löppum á kerrunni alla leið úr Kópavogi og hingað vestur á Sand. Mér leist ekki vel á þetta ferðalag í byrjum en allt gekk að óskum og kaminan komst heilu og höldnu í hús.
Það var fleira á kerrunni. Við tókum með úrvals bor sem getur borað 16 cm gat á stein. Og í stuttu máli var borað gat á vegg smiðjunnar til að setja reykrörið út og upp á þak. Þetta gekk eins og í sögu og í nú styttist í að hægt verði að kveikja upp.
25.11.2018 19:11
Járnið komið á þakið
Hér eru ekki slegin nein vindhögg. Árni og Moli fóru í sveitina á mánudaginn þann 19. nóvember. Þeir fóru með þakpappa, nagla, hefti og annað sem þarf til að koma pappa og járni á hús. Á þriðjudagskvöldið kom svo járnið með flutningabíl frá BB. Unnið var að hugmynda og undirbúningsvinnu og Moli æfði boltafimi af krafti. Á miðvikudeginum var járnið borað og híft upp á þakið og pappinn settur á norðurhliðina sem veit að sjónum. Moli var ekki sáttur við að vera skilinn einn eftir, niðri á jörðinni og elti pabba sinn upp stigann alveg upp á þak. Ekki neinn venjulegur hundur hann Moli. Mjög há hæð yfir landinu og logn sem ekki er hægt að stóla á á þessum tíma árs. Að vísu er ekki hægt að vinna nema frá kl. 10 til 17 hvern dag vegna birtunnar. Það er náttúrulega mesta skammdegið núna. Þeir voru bara þrír í þessu djobbi Árni, Moli og kranabíllinn. Á fimmtudaginn hífði Árni járnið upp á þak, mældi og hagræddi plötunum og festi lauslega á alla norðurhliðina. Á föstudagsmorgun kláraði hann síðan að negla alla þá hlið. Eftir hádegið á föstudeginum kom síðan Palli nágranni og aðstoðaði við að setja pappa á suðurhliðina og tilla járninu á. Laugardagurinn fór svo í að klára að negla og þá var ég komin til að kasta bolta fyrir Mola. Afrek ekki satt ?
![](http://cs-001.123.is/DeliverFile.aspx?id=5365be66-b18f-4593-8a29-e45e71f8dc07)
![](http://admin.123.is/images/transdot.gif)
![](http://cs-001.123.is/DeliverFile.aspx?id=059d169d-6c02-4c1c-a013-de1f2777022d)
![](http://cs-001.123.is/DeliverFile.aspx?id=bbe7de5a-d542-422d-9ab9-5530337b6a6b)
![](http://cs-001.123.is/DeliverFile.aspx?id=c09df216-d85f-4f2d-bb1d-0c9befe2d32a)
![](http://admin.123.is/images/transdot.gif)
##sidebar_two##