12.10.2011 19:13
ORKA = Framlenging út október
============ FRAMLENGING =====================================
Snæfellsjökull spilar lykilhlutverk í sýningunni, sýndur frá ýmsum sjónarhornum
og í mismunandi ásigkomulagi. Aðrar myndir eru flestar teknar á Snæfellsnesi.
Myndirnar eru á striga, í hvítum ramma, 100x120 cm að stærð og eru til sölu.
Nánari upplýsinar í síma 845 1780.
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Myndirnar sýna kraft og fegurð náttúruaflanna, orku æðri mannlegum mætti. Þær eiga að vekja til umhugsunar um
að við erum öll gestir á sama "kaffihúsi" og því öll jöfn fyrir almættinu hvort sem við erum hvít, gul, svört eða röndótt.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
10.10.2011 07:53
Friðarsúla Yoko Ono
Friðarsúla Yoko Ono í Viðey í tveimur hlutum og tunglið í baksýn. 9. október 2011
29.05.2011 00:02
Öskusólin
Öskurönd sást greinilega við sólarupprás á leið minni yfir hafið frá Ameríku 27. maí 2011
20.11.2010 11:30
Ljósmyndasýning í Drymlu Bolungarvík
Er opin á opnunartíma Drymlu fram til jóla.
Myndir á Plexígleri
Eldavélar, gluggar, ást og fjara
Sýningin er óður til æskunnar. Eldavélin er hjarta heimilisins. Stöðug uppspretta matar og hita. Glugginn opnar sýn út í heiminn þar sem ástin svífur yfir vötnunum, ástin á lífið og fegurðina í náttúrunni ekki síst fjöruborðinu og fjörunni.
Þar mætast haf og land og eiga ástarfund. Ilmur af þangi. Yndislegt líf. Steingerður Steingerður Jóhannsdóttir
Eldavélin í Litluhlíð Eldavél Gísla á Uppsölum Eldavélin á Hesteyri
Gluggi á Hesteyri Glugginn hans Gísla Gluggi í Ósvör
Fjöruborðið er fundarstaður alheimsins.
Myndirnar á sýningunni eru allar teknar á Vestfjörðum og við Breiðafjörð. Fjölbreytt birtingarform þ.e. myndir úr fjöruborðinu prentaðar á plexigler, myndir á striga og hefðbundnar myndir á pappír.
tók myndirnar og setti upp sýninguna