Færslur: 2013 Mars
21.03.2013 21:28
Hav-ana eða Havana myndasýning var opnuð 23. mars 2013 í Lista og minningamiðstöð ABC barnahjálpar " Líf fyrir Líf " á Laugavegi 103 í Reykjavík. Sýningin er opin frá kl. 12:00 - 18:00 mánudaga til föstudaga og 12:00 - 16:00 á laugardögum til 18. apríl 2013. Kæru vinir verið hjartanlega velkomin til að sjá skemmtilegar myndir og kynnast starfsemi ABC barnahjálpar. Á staðnum má kaupa súkkulaði og myndir til styrktar starfinu. Myndirnar eru teknar af Steingerði bæði í Havana höfuðborg Kúbu og á Íslandi, ofansjávar -og neðan.
Útsýni úr glugga Hvítahússins í Krossavík
15.03.2013 23:18
Loksins er sýning framundan
Algerlega óvænt var mér boðið að sýna myndirnar mínar í stórum sal "ABC barnahjálpar" á Laugavegi 103 i Reykjavík. Boð sem ekki er hægt að hafna. Vona að sýningin leiði gott af sér og hjálpi litlum fallegum börnum sem á þurfa að halda.
- 1